Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið
Þróttur Reykjavík mun leika í Bestu deild karla í fótbolta, í fyrsta sinn síðan 2016, eftir 1-0 sigur á Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli í dag. Það var ljóst við mætingu í Laugardalinn hvað væri undir í dag. Góðum 45 mínútum fyrir leik var fólk byrjað að streyma í stúkuna og ljóst að mörg voru að gera sér glaðan dag. Ekki skemmdi veðrið fyrir en miðað við að það sé komið á síðari hluta septembermánaðar var veðrið upp á tíu komma fimm. Hvað leikinn varðar þá voru hér að mætast tveir heldur ólíkir leikstílar. Annars vegar Þróttur með sitt flæðandi spil á meðan Fylkir vill spila örlítið skipulagðari leik og ekki til í að lyfta jafn mörgum mönnum hátt á völlinn. Leikurinn hófst á þá vegu að Þróttur var meira með boltann og var líklegra til afreka. Þrátt fyrir að engin alvöru dauðafæri hafi litið dagsins ljós þá voru Þróttar að mörgu leyti óheppnir að vera ekki með forystu í hálfleik. Í tvígang hafði boltinn flogið í gegnum markteig Fylkis án þess að Þróttari væri þar. Þá höfðu þeir ekki nýtt góðar stöður til að skapa sér almennielg færi. Besta færið fékk jötuninn Njörður Þórhallsson eftir skalla frá bróður sínum, Hlyn, á fjærstöng í kjölfar hornspyrnu Kára Kristjánssonar. Njörður þurfti hins vegar að teygja sig í boltann og skjóta í fyrsta.
Read the original report: visir.is →
- Published
- 20 Sep 2026
- Languages
- Íslenska